Vönduð 416 blaðsíðna ljósmyndabók með ljósmyndun og stuttum frásögnum af atburðum á Reykjanesi frá janúar 2020 til haustsins 2024. Hátt í 500 myndir og formáli eftir Guðna Th Jóhannesson, forseta.
Reykjanes Vaknar
15.800 kr.
Description
Í janúar 2020 fór ég til Grindavíkur til að ljósmynda á íbúafundi í íþróttahúsinu. Fundurinn var haldinn í kjölfar snarpra jarðskjálfta á svæðinu. Þar var farið yfir stöðuna, möguleikann á frekari skjálftum og jafnvel eldgosum og rýmingaráætlun fyrir Grindavík kynnt. Þessi fundur var upphafið af atburðarás sem enn sér ekki fyrir endann á og jafnframt upphafið af verkefni sem ég kalla Reykjanes vaknar þar sem ég skrái í ljósmyndir þá ótrúlegu atburði sem hafa átt sér stað á Reykjanesi síðan þennann kalda janúardag 2020. Í u.þ.b. 80 ferðum hef ég tekið nærri 100 þúsund myndir og í þessarri bók eru hátt í 500 þeirra sem segja söguna frá janúar 2020 til haustsins 2024 eins og ég upplifði hana. Vönduð 416 blaðsíðna bók með ljósmyndun og stuttum frásögnum á íslensku af atburðum á Reykjanesi og formála eftir Guðna Th Jóhannesson þáverandi forseta og sagnfræðing.
„Í þessu riti sjáum við ljóslifandi myndir af samstöðu og seiglu, hugviti og hugrekki. “
– Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, úr formála bókarinnar.
“„Eftir að hafa verið í miðjum slagnum frá upphafi og upplifað flest áföllin á eigin skinni nær þessi bók að setja atburðina í rétt samhengi og rétta tímaröð. Ásamt því nær bókin að fanga samtakamátt okkar Íslendinga þegar á reynir og er þannig mikilvæg heimild um það sem við höfum öll tekist á við frá ársbyrjun 2020.“
”
– Otti Sigmarsson, Grindvíkingur, björgunarsveitarmaður og fyrrverandi formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Additional information
| Weight | 2,5 kg |
|---|---|
| Dimensions | 26,5 × 26,5 × 3,6 cm |


















