Ljósmyndun, video og miðlun í 15 ár
Um mig í stuttu máli
Ég hóf störf í björgunarsveit 16 ára árið 1990 og hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg við kennslu og önnur störf árið 1997. Árið 2009 fór ég fyrst að ljósmynda leit og björgun af alvöru og skipti svo alfarið yfir í ljósmyndastörfin árið 2012. Síðan þá hef ég ljósmyndað fyrir ýmsa aðila neyðargeirans og fjölda fyrirtækja bæði innlend og erlend. Á sama tíma hef ég einnig lagt áherslu á persónuleg verkefni sem mörg hver hverfast um þessar tvær ástríður mínar, ljósmyndun og leit og björgun.
Þegar hér er komið á mínum ferli, bæði í atvinnu og í lífinu, reyni ég að velja mér verkefni sem samræmast mínum áherslum og áhugamálum, trúr því að hver sé sinnar gæfu smiður og hafi möguleika á að ryðja sér sína eigin leið með vilja og mikilli vinnu. Þú finnur meira um manninn á síðunni um mig.
myndasafn
Í myndasafninu mínu eru þúsundir ljósmynda af neyðarstörfum, útivist, landslagi og fleiru auk mynda sem ég hef afhent viðskiptavinum.
miðlun
Mikilvægur hluti af starfi mínu er að miðla þekkingu og þeim sögum sem ég skrái og til þess býð ég upp á vinnustofur og fyrirlestra.
Sýningar
Útgáfur
Fyrirlestrar
Leit á jökli
2012, Sýning í Björgunarmiðstöð
112 Fólkið
2016, Bók og sýning
TEDx Reykjavík
2018, „Refocusing through photography“
Bucharest Photofest
2023, Trust in emergency phohgraphy – fyrirlestur
Norræn myndasýning
2022, Úrvalsmynd í flokki frétta- og heimildaljósmynda
Reykjanes vaknar
2024, Ljósmyndabók með sögum af fólki og hamförum
Shooting Rescue
2020, Ljósmyndabók með sögum af leit og björgun
Reykjanes vaknar
2024, Ljósmyndasýningar við Hörpu og í Grindavík
Reykjanes Awakens
2026, Ljósmyndabók á ensku um náttúruhamfarir á Reykjanesskaga















